Fréttir

HaridnirV2009-12

Samþætting námsgreina í háriðnum

Nemendur Hársnyrtideildar hafa að undanförnu unnið stórt þemaverkefni sem samþætt var í tveimur áföngum, iðnfræði (IFH 203) og iðnteikningu (ITH 203). Byrjað var á að draga nemendur saman í 3ja manna hópa og síðan drógu hóparnir sér verkefni til að vinna með en þau voru Blómatímabilið, Sixties, Gríska tímabilið og Viktoríutímabilið.  Nemendur fengu nokkuð frjálsar hendur um hvernig þeir ynnu verkefnið og fjölluðu um hártísku tímabilsins, förðun, fatnað, byggingarstíl, húsgögn, fataefni, bólstrun og allt það sem nemendum datt í hug að mætti koma fram um tímabilið.

Nemendur fluttu síðan verkefnin fyrir kennara sína miðvikudaginn 25. mars s.l.  Sumir hópar voru með líkön af húsum frá tímabilinu sem þeir höfðu valið, einn hópurinn gerði upplýsingabækling um sitt tímabil, sumir hóparnir klæddu sig upp og förðuðu samkvæmt tímabilinu.  Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum lögðu nemendur mikinn metnað í verkefni sín og úr varð stórskemmtileg kennslustund þar sem kennarar lærðu til dæmis margt og mikið af nemendum sínum.  Vissir þú t.d. að Mary Quant hönnuður hannaði minipilsið og skírði það minipils eftir uppáhaldsbílategundinni sinni, Austin Mini?

Svava Jóhannesdóttir
svava@fss.is
Íris Jónsdóttir
iris@fss.is
 

HaridnirV2009-03

HaridnirV2009-02

HaridnirV2009-11

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.