Fréttir
Stærðfræðikeppni grunnskólanemenda
Stærðfræðikeppni grunnskólanema var haldin í skólanum þriðjudaginn 17. mars. Þessi keppni er árlegur viðburður en að þessu sinni tóku 114 nemendur þátt í henni frá öllum grunnskólum á svæðinu. Nemendur mættu fyrst á sal skólans og fengu þá pizzu og gos. Keppnin hófst síðan kl. 16:00 og keppendur sátu sveittir yfir stærðfræðinni til 17:30.
Verðlaunaafhending fyrir keppnina fer svo fram á sal skólans þriðjudaginn 31. mars kl 18.00. Á hana eru boðaðir 10 efstu úr hverjum árgangi ásamt foreldrum. Allir fá viðurkenningaskjal og þrír efstu í hverjum árgangi fá peningaverðlaun sem Íslandsbanki gefur. Auk þess fá þrír efstu keppendurnir í 10. bekk grafískan vasareikni að gjöf frá Verkfræðistofu Suðurnesja. Pizzuveislan var í boði skólans og þessara stuðningsaðila.
Hér á vefnum má einnig finna myndasafn frá keppninni.



