Fréttir

Sodoma-046

Sódóma á fjalirnar

Söngleikurinn Sódóma var frumsýndur í Andrew´s Theater á Vallarheiði föstudaginn 6. mars. Tæplega 40 manna hópur nemenda skólans stendur að sýningunni en verkið er byggt á kvikmynd Óskars Jónassonar. Það var Felix Bergsson sem samdi handritið en leikstjóri er Orri Huginn.  Þeir Óskar, Felix og Orri voru allir viðstadddir frumsýninguna.

Húsfyllir var á frumsýningunni og gestir á öllum aldri.  Viðtökur voru góðar og greinilegt að viðstaddir kunnu vel að meta sýninguna.  Leikurum og aðstandendum sýningarinnar var vel fagnað í leikslok.  Kristján Ásmundsson skólameistari færði aðstandendum blómvendi og óskaði hópnum til hamingju með verkið.

Það er óhætt að mæla með Sódómu enda er verkið fjörugt og skemmtilegt og miðað við viðtökur gesta á frumsýningu höfðar það til fólks á öllum aldri.  Aðrar sýningar eru 8., 11., 15. og 18. mars og hefjast kl. 20:00.

Við bendum líka á veglegt myndasafn frá frumsýningunni.

 

Sodoma-052

Sodoma-079

Sodoma-006

Sodoma-089



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.