Fréttir

Edlisfraedikeppni

Sigtryggur í úrslitum í eðlisfræði og efnafræði

Sigtryggur Kjartansson, nemandi við skólann, hefur tryggt sér sæti í úrslitum landskeppna í eðlisfræði og efnafræði.

Sigtryggur keppir í landskeppninni í eðlisfræði en þar taka þátt fjórtan framhaldsskólanemendur. Þessir nemendur hafa tryggt sér þátttöku í landskeppninni eftir að hafa tekið þátt í undankeppni sem haldin var í framhaldsskólum landsins í febrúar. Úrslitakeppnin fer fram í Háskóla Íslands helgina 14.-15. mars og skiptist í fræðilega og verklega keppni. Undanfarin ár hafa fimm efstu keppendurnir tekið þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði en í ár verða þeir haldnir í Mérida í Mexíkó 14. til 19 júlí.

Sigtryggur hefur einnig tryggt sér keppnisrétt í landskeppninni í efnafræði. Þar keppa 15 nemendur en alls tóku 116 þátt í undankeppni í febrúar. Úrslitakeppnin verður 28.-29. mars í Háskóla Íslands og skiptist í fræðilega og verklega hluta. Fjórir efstu keppendurnir keppa síðan á Alþjóðlegu Ólympíuleikunum í efnafræði sem haldnir verða í Cambridge, Englandi, dagana 18.-27. júlí.

Það er mjög ánægjulegt að nemandi okkar hafi tryggt sér þátttökurétt í þessum keppnum. Sigtryggur er enda afburðanemandi og hefur m.a. verið í Gettu betur liði skólans undanfarin þrjú ár.  Við óskum honum góðs gengis í keppnunum framundan og vitum að hann verður skólanum sínum til sóma.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.