Fréttir

Timamynd01

Mætingar og skólavist á haustönn

Á haustönn 2009 má reikna með að umsóknir um skólavist verði fleiri en skólinn getur tekið við. Vegna þess gæti þurft að vísa einhverjum frá og þá verður miðað við eftirfarandi:

- Þeir nemendur sem hætta á þessari önn fá ekki skólavist á haustönninni.  Þetta á við um nemendur sem hætta í skólanum eftir að úrsagnarfrestur (19. janúar) er liðinn.

- Þeir nemendur sem segja sig úr eða mæta ekki í próf í þremur eða fleiri áföngum eiga ekki vísa skólavist á haustönninni.

Það er því mikilvægt að nemendur stundi námið vel á önninni og mæti vel.  Þeir sem ekki hafa mætt vel það sem af er önninni verða því að taka sig á og mæta í alla tíma það sem eftir er.  Við minnum sérstaklega á að hægt er að bæta upp mætingar í íþróttum með því að mæta í stoðtíma á miðvikudögum.  Þeir sem þurfa aðstoð eða upplýsingar um stöðu sína geta pantað tíma hjá námsráðgjöfum eða mætingastjóra.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.