Fréttir

MorfisJan09

Gott gengi í MORFÍS

Lið skólans í MORFÍS, mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna, hefur farið á kostum í vetur og er komið í fjögurra liða úrslit keppninnar. Fyrr í vetur vannst sigur á Menntaskólanum á Egilsstöðum á útivelli og síðan lá lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ í 8 liða úrslitum.  Sú keppni fór fram á okkar heimavelli að viðstöddu fjölmenni og var keppnin æsispennandi.  Umræðuefnið var ameríski draumurinn og var okkar lið með en Garðbæingar á móti.  Svo fór að lokum að tveir dómarar af þremur dæmdu okkar mönnum sigur en auk þess var Sigfús Jóhann Árnason valinn ræðumaður kvöldsins.  Auk hans skipa liðið þeir Fannar Óli Ólafsson, Davíð Már Gunnarsson og Oddur Gunnarsson liðsstjóri.  Við óskum piltunum til hamingju með sigurinn og góðs gengis í fjögurra liða úrslitunum.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.