Fréttir

SkolahusGamalt

Endurfundir útskriftarnemenda 1982-1985

Kæru samnemendur í FS árin 1982-1985

Kannast einhver við þetta: samlokurnar í mötuneytinu hjá Möttu, reyksvæðið, KK-húsið, hamborgarana í pulsuvagninum, náttfatadaginn, nemendasjoppuna, busadagana, morfis (karlmenn í pilsum), leikritið sem hét aftur hvað? Og svo mikið fleira sem sem rifjast örugglega upp við réttar aðstæður ??

Nú er svo komið að hugur vor dvelur við gömlu góðu dagana í Keflavík (elli kellan herjar á ) ..Í umræðunni millum nokkurra fyrrverandi nemenda er hugmynd að hittingi, að gaman væri nú að sjá hve vel unga fólkið sem var í Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur komist undan í veröldinni.

Líst ykkur nú ekki bara vel á að hittast og rifja upp alla vitleysuna, mæta með myndir og jafnvel segja sögur eða vera með einhverskonar uppistand? Eftirfarandi er samsuða af dagskrá en annars allt opið:

1. Hittingur kl. 13:00 til 17:00 í gamla skólanum 21. febrúar 2009.
2. Vinsamlega mætið með eitthvað gott að eigin vali til að leggja á sameiginlegt
   kaffiborð, við sjáum til þess að við fáum kaffi með því.
3. Skylda að koma með gamla góða skapið eða þetta nýja sem er fyrirtak.

Við ætlum að sjá til þess að eitthvað af gömlu góðu kennurunum okkar verði á staðnum og að við fáum fylgd um gamla skólann okkar sem hefur heldur betur stækkað og verið breytt.

Þeim sem hafa svo ekki fengið nóg eftir 13:00 til 17:00 hittinginn er að sjálfsögðu boðið í vilt partý til Ingu og Svölu í sjálfri Keflavíkinni um kvöldið. Spurning hvort okkur gömlu uppreisnarseggjunum tekst að finna gömlu and-skvísu garmana okkar.

Þið þurfið ekki að gera boð á undan ykkur en er velkomið að hringja í okkur ef eitthvað er.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Kærar FS kveðjur,
Svala Sigurgeirsdóttir, s: 861-1163
Ingibjörg Þ. Ólafsdóttir (Inga), s: 847-7242
Gylfi Jón Gylfason, 864-9180

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.