Fréttir
Dularfullt morð hjá CSI
Fimmtudaginn 20. nóvember stóðu nemendur og kennarar CSI 103 fyrir sannkölluðu Morðkvöldi á sal skólans. Um 50 nemendur skráðu sig til leiks og áttu að upplýsa dularfullt morð með rannsóknum og athugunum.
Þegar gesti bar að garði hafði morðið þegar verið framið og fjórir lágu undir grun. Þátttakendur skiptu sér síðan í hópa og unnu fimm verkefni: skoðuðu vettvang, rannsökuðu fingraför, skoðuðu hársýni í smásjá, rannsökuðu blóðslettur og greindu efni sem fundust á vettvangi. Með þessum rannsóknum áttu þeir að geta fundið út hver morðinginn var og var ekki annað að heyra en flestum hafi tekist það.
Eins og nafn áfangans CSI 103 ber með sér er viðfangsefnið rannsóknir sem tengjast glæpum. Kennarar leggja fram ákveðna glæpasögu sem nemendur þurfa að leysa með því að taka sýni, rannsaka gögn, gera tilraunir og túlka vísbendingar. Í áfanganum koma saman efnafræði, eðlisfræði og líffræði. Hópurinn vinnur í samstarfi við nemendur í leiklistaráfanga 213 en þar eru nemendur að vinna að handritsgerð út frá glæpasögunum sem síðan verður að CSI - stuttmynd. Sú mynd verður frumsýnd í lok annar.
Við minnum á myndasafn frá Morðkvöldinu.




