Fréttir
MORFÍS-sigur á Egilsstöðum
Lið skólans vann lið Menntaskólans á Egilsstöðum í 1. umferð Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna, MORFÍS. Keppnin fór fram eystra og fylgdi fjölmennur hópur okkar liði og lagði á sig 12 tíma rútuferð til að styðja sitt fólk. Umræðuefni kvöldsins var læknar og var okkar fólk með en Austfirðingar á móti. Að lokum var það okkar lið sem fór með sigur af hólmi og var munurinn 130 stig. Ræðumaður kvöldsins kom einnig úr okkar hópi en það var Sigfús Jóhann Árnason. Liðið skipuðu Guðni Oddur Jónsson, Davíð Már Gunnarsson, Sigfús Jóhann og Anna Þorsteinsdóttir liðsstjóri. Liðið er því komið í 2. umferð keppninnar sem fer fram eftir áramót.
Myndirnar sem fylgja fréttinni eru af heimasíðu Menntaskólans á Egilsstöðum.







