Fréttir

Vinarferd-03

FS-ingar hjá ÖSE í Vín

Kannski væru nemendur ekki eins syfjaðir og ekki eins einbeittir við smassa undir borði í sumum samfélagsgreinum ef þeir gerðu sér grein hversu mikilvægt efnið er. Þeir sem hafa áhuga á kennsluefninu ættu ekki heldur að telja það einhverja vandræðalega sérvisku. Í stórum málum eins og þegar teknar eru ákvarðanir um frið, velferð og mannréttindi reynir á þekkingu á samfélaginu. Gott dæmi um það er starf Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE).

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) reynir að passa upp á mannréttindi og stuðla að friði langt út fyrir mörk Evrópu. ÖSE ákvað að þörf væri að kynna starf sitt fyrir ungu fólki og ákvað því að standa að ungmennaráðstefnu í Vínarborg 5.-7. júlí 2008 þar sem nemendur á framhaldskólaaldri frá 30 löndum kæmu saman og æfðu sig í halda ráðstefnu.

Sendiráðið í Vínarborg sneri sér til nokkurra þekktra íslenskra framhaldsskóla til að athuga hvort áhugi væri fyrir því að senda nemendur á ráðstefnuna. Ólafur Jón skólameistari fyrir hönd Fjölbrautaskóla Suðurnesja sýndi mikinn áhuga og snögg viðbrögð og hrepptum við tækifærið til að vera fulltrúar Íslands.  Ægir Karl vald þrjá nemendur til fararinnar, þau Önnu Rún, Gunnar Hörð og Guðmund Viktors.  Þau urðu að kynna sér starfsemi ÖSE og æfa sig í að leysa  alþjóðleg vandamál.  Lið hverrar þjóðar lék sendinefnd frá öðru ríki og var íslenska liðið sendinefnd Grikklands en sendinefnd Íslands var leikin af Úkraínu.

Fjórða júlí var flogið út til Vínarborgar og komið sér fyrir á prýðishóteli.  Síðan var neðanjarðarlestin tekin til að skrá sig í Hofburg sem er stóreflis keisarahöll þar sem ráðstefnan var haldin.  Daginn eftir var aðallega fræðsla tengd viðfangsefnum ráðstefnunnar.  Um kvöldið fóru nemendurnir í skemmtigarð til að kynnast.  Sjötti júlí var aðalráðstefnudagurinn og það var sannarlega púldagur.  Þátttakendur léku hlutverk sín af römmustu alvöru en samt tókst að ná samkomulagi í öllum málaflokkum.  Þar skiptu kaffihléin mestu máli fyrir samninga og tók F.S.- ingar dyggilega þátt í þeim samningum.

Síðasta ráðstefnudaginn var gengið frá málum og fluttar yfirlýsingar frá sendinefndunum.  F.S.-ingarnir fluttu sínar yfirlýsingar  á ensku.  Um kvöldið var glæsileg lokaveisla í hátíðarsal í höllinni.  Eftir hana skemmtu nemendurnir frá 30 mismunandi löndum sér saman.

Eftir ráðstefnuna gáfust tveir dagar í að skoða Vínarborg og sáum við meðal annars uppstoppaða menn, hina miklu keisaraynjuhöll Schönbrunn og gömul drápstól.  Níunda júlí var okkur svo boðið í veislu til sendiherra Íslands í Vínarborg.  Tíunda júlí var flogið heim til Íslands.

Það voru Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Styrktarsjóður Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Sendiráð Íslands í Vín og ÖSE sem stóðu að þessari ferð sem var nemendum að kostnaðarlausu.  Við fengum góða umsögn frá þeim sem stóðu að ráðstefnunni, bæði hvernig við stóðum að undirbúningi og þátttöku í ráðstefnunni.

Á fyrstu myndinni eru Vínarfararnir ásamt sendiherra Íslands í Vín.  Á þeirri næstu er liðið mætt utan við Hofburg þar sem ráðstefnan var haldin.  Á þriðju myndinni eru fulltrúar okkar í fundarsalnum. Sem Grikkland!  Á síðustu myndinni eru svo fulltrúar okkar við merki ÖSE. Frá vinstri eru Guðmundur Viktorsson, Anna Rún Jóhannsdóttir, Gunnar Hörður Garðarsson og Ægir Karl Ægisson, kennari og fararstjóri.

 

Vinarferd-01 

Vinarferd-02

 

Vinarferd-03

 

Vinarferd-04 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.