Fréttir

GrodursetningV2008-10

Gróðursetning útskriftarnemenda

Föstudaginn 16. maí fór hópur útskriftarnemenda í hina hefðbundnu gróðursetningu ásamt nokkrum kennurum. Veðrið var ágætt og að venju var góð stemmning í hópnum enda hefð fyrir því að boðið er upp á sælgæti og gos í boði skólameistara. Farið var að Rósaselsvötnum fyrir ofan Keflavík en þar á skólinn skika þar sem útskriftarhópar gróðursetja plöntur til minningar um veru sína í skólanum. Unnið var af krafti og margar hendur unnu létt verk við að koma plöntunum ofan í jörðina.

Svæðinu sem um ræðir fékk skólinn á sínum tíma úthlutað hjá Skógræktarfélagi Suðurnesja. Þeir nemendur sem útskrifast frá skólanum gróðursetja þar plöntur tvisvar á ári; nemendur sem útskrifast á haustönn fara í upphafi haustannar en hópar sem útskrifast að vori gróðursetja þá. Þetta hefur verið gert í nokkur ár og er búið að gróðursetja þó nokkuð af plöntum sem eiga vonandi eftir að vaxa þar og dafna.

Hér má sjá nokkrar myndir frá gróðursetningunni.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.