Fréttir
Húsasmíðir í sveinsprófi
Dagana 14. og 15. maí þreyttu 10 nemendur sveinspróf í húsasmíði í tréiðnadeild skólans. Nemendurnir hafa allir stundað nám við skólann og sex þeirra útskrifast úr tréiðnadeildinni nú í vor. Ekki er að efa að allir hafa þeir staðið sig vel enda hafa þeir stundað námið af kappi undir öruggri leiðsögn kennara sinna, þeirra Gunnars Valdimarssonar og Viggós Benediktssonar. Von er á úrskurði prófdómara á næstu dögum.

