Fréttir
Úthlutað úr minningarsjóði Gísla Torfasonar
Úthlutað var úr minningarsjóði Gísla Torfasonar í febrúar. Að þessu sinni bárust umsóknir um úthlutun úr sjóðnum frá þremur nemendum, sem allir hlutu styrk til námsbókakaupa. Ákveðið hefur verið að úthluta er úr sjóðnum í janúarmánuði ár hvert og eru nemendur FS beðnir að fylgjast með tilkynningum um það á heimasíðu skólans.
Styrktarsjóðurinn var stofnaður til minningar um Gísla Torfason, stærðfræðikennara og námsferilsstjóra, sem lést árið 2005. Sjóðurinn var stofnaður með það fyrir augum að styrkja nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem eiga í ýmis konar erfiðleikum og þar með fylgja eftir því góða starfi sem Gísli vann hér í skólanum.

