Fréttir
Ræðukeppni í SAM
Í framhaldi af heimsókn Styrmis Barkarsonar í SAM 106 var haldin ræðukeppni í fyrirlestrarsal skólans. Ræðuefnið var hvort kynið væri sterkara og sýndu bæði liðin góða takta í að verja sinn málstað. Keppnin var mjög jöfn og lyktaði með því að liðið sem hélt því fram að konur væru sterkara kynið sigraði. Við óskum þeim til hamingju með sigurinn og vonum að þarna hafi væntanlegir ræðumenn skólans stigið sín fyrstu skref.










