Fréttir
Gott hugvit nemenda í HYD 106
Í valáfanganum HYD 106 skoða nemendur vetni og notkun þess frá öllum hliðum. Áfanginn er svo sannarlega þverfaglegur en þar koma eðlisfræði, efnafræði, rafiðnir, málmiðnir, vélstjórn saman undir einn hatt. Lokamarkmiðið er svo að smíða vetnisbíl og nemendur eru þegar farnir að hita upp fyrir smíðina með því að kljást við skemmtilegar þrautir. Miðvikudaginn 9. janúar kepptu nemendur í smíði turna úr sogrörum. Það má segja að þar hafi frjótt ímyndunarafl fengið að njóta sín og bæði nemendur og kennarar skemmtu sér vel.





