Fréttir
Myndlistarsýning Starfsbrautar
Þessa dagana eru nemendur í prófum og uppskera vonandi eins og þeir hafa sáð. En árangurinn af námi er ekki bara mældur prófum í lok annarinnar. Nemendur á starfsbraut hafa lagt sig alla fram í myndlistaáfanga á önninni og þar eru það alls konar listaverk sem hafa orðið til. Til að skoða verk sín hafa nemendurnir svo sett saman glærusafn með myndum af verkunum og í sumum tilfellum eru ljósmyndirnar listaverkin. Svo er bara að skoða útkomuna og athuga hvort efnilegir listamenn leynist kannski í hópnum.
Myndlistarsýning Starfsbrautar (PowerPoint-skjal)


