Fréttir
Fransmenn í FS
Fyrir margt löngu stunduðu franskir sjómenn veiðar á Íslandsmiðum og fer mörgum sögum af samskiptum þeirra við landann og eru þær flestar eru af hinu góða. Sagt er til dæmis að Hornstrendingar hafi blandast þeim og það sé ástæða fyrir því að margir Strandamenn hafi heitið sérkennilegum nöfnum áður fyrr og einnig verið nokkuð dökkir yfirlitum. Þá eru til nýrri og jafnframt skemmtilegar sögur af samskiptum Íslendinga og franskra duggara í sögum Hendriks Ottóssonar um strákinn Gvend Jóns og félaga í Vesturbæ Reykjavíkur á fyrri hluta 20. aldar. Voru samskiptin aðallega á þann veg að strákarnir í Vesturbænum urðu sér úti um júllur til að róa út í duggurnar sem lágu úti á höfninni til að fá biskví, sem var kex sem Frakkarnir áttu og gáfu það strákunum þeim til mikillar ánægju. Fransmenn hafa einnig komið við sögu á Austfjörðum og eflaust víðar.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og aftur eru franskir sjómenn farnir að sækja á Íslandsmið, ekki til að veiða fisk, heldur til að fiska eftir þekkingu hjá íslenskum starfsbræðrum sínum. Fyrir milligöngu FS hafa nokkrir Frakkar komið í fjögur skipti á námskeið til að kynna sér snurvoðaveiðar en sú veiðiaðferð hefur ekki stunduð við Frakklandsstrendur fram að þessu. Sjómennirnir koma frá Biskaíflóa og Brytaníuskaga, en þeir hafa aðallega stundað togveiðar og eru orðnir óhressir yfir því hvað olíukostnaður við togveiðar er orðinn hár. Veiðar í snurvoð er veiðiskapur sem krefst mun minni olíueyðslu og er því góður kostur til að bregðast við nýjum aðstæðum. Námskeiðin byggjast á fyrirlestrum um snurvoðaveiðar og þar sem tækni við veiðar og val á veiðarfærum er kynnt ásamt því að skoða líkön af snurvoðum í tilraunatanki FS. Svo er farið í heimsóknir á netaverkstæði til að skoða snurvoðir í smíðum ásamt því að skoða tóg og ýmsa íhluti. Kynningar á spil- og togbúnaði snurvoða haldnar af framleiðanda. Þá er einnig farið í róður með snurvoðabátum og hafa tveir menn farið um borð í hvern bát. Bátarnir Siggi Bjarna, Geir, Farsæll og Njáll hafa tekið menn með út í róður og fá skipstjórar og áhafnir sem og aðrir sem hafa komið að málinu kærar þakkir fyrir ómetanlega aðstoð. Hér á eftir koma myndir af námskeiðsmönnum.
Lárus Þór Pálmason,
deildarstjóri veiðarfæradeildar






