Fréttir
Menningarferð í höfuðborgina
Nemendur og kennarar á Listnámsbraut í FS brugð undir sig betri fætinum miðvikudaginn 10. október og skelltu sér í menningarferð til Reykjavíkur. Farið var á Kjarvalsstaði en þar voru í gangi sýningar á verkum Eggerts Péturssonar og meistara Kjarvals. Einnig var farið á Listasafn Reykjavíkur og skoðuðu nemendur verk eftir Erró og Gjörningaklúbbinn. Ferðir sem þessar eru farnar á hverri önn enda eru þær mikilvægur hluti af námi í listaáföngum. Ferðin tókst vel í alla staði og höfðu nemendur og kennarar gaman af.


