Fréttir

SjukralidarRum

Nýtt rúm á sjúkraliðabraut

Það eru stórfréttir sem berast af sjúkraliðabraut skólans en brautin hefur fengið nýtt sjúkrarúm i kennslustofu sína. Það mun nýtast einstaklega vel í verklegri kennslu á brautinni með þeim búnaði sem fyrir er. Rúmið er fjórskipt, rafknúið og mikill fengur fyrir nemendur.  Var rúmið búið upp við mikinn fögnuð viðstaddra sem stilltu sér upp fyrir myndatöku af þessu gleðilega tilefni.

Sjúkraliðabraut er 120 eininga braut og er námstími því að meðaltali sex annir.  Eftir að hafa lokið henni geta nemendur fengið löggildingu sem sjúkraliðar.  Nú er 21 nemandi skráður á brautina við skólann.

Sjá nánar: Sjúkraliðabraut

Á myndinni eru stúlkurnar á sjúkraliðabrautinni og kennari þeirra, Sólveig Björk Granz.  Þess má geta að líðan sjúklingsins í rúminu er þokkaleg og hefur reyndar verið óbreytt í þó nokkur ár.
 
SjukralidarRum


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.